Agnieszka Ewa Ziólkowska og Claudie Ashonie Wilson taka þátt í pallborðsumræðum á viðburðinum Hennar rödd í Iðnó á fimmtudaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Guðrún Hálfdánardóttir
Vinnudagur kvenna af erlendum uppruna er lengri en gengur og gerist meðal kvenna á Íslandi. Auk þess er vinnutími þeirra óreglulegri sem getur hamlað þátttöku í margs konar viðburðum, íslenskunámi og aðgangi að íslensku málsamfélagi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu, Staða kvenna af erlendum uppruna – Hvar kreppir að?
Viðburðurinn Hennar rödd — pallborðsumræður með konum af erlendum uppruna verður haldinn 5. mars í tilefni alþjóðlegs barráttudags kvenna sem er 8. mars. Í pallborðsumræðum verður rætt um stöðu kvenna af erlendum uppruna á íslenskum atvinnumarkaði. Meðal annars verður rætt um nám, reynslu, tungumálakunnáttu, misrétti hvað varðar laun og starfsumhverfi, upplýsingaflæði og fleira. Fundarstjóri er Claudie Ashonie Wilson, héraðsdómslögmaður hjá Rétti Aðalsteinsson & Partners.
